Formúla 1 fer fram í Mónakó um helgina en keppnin er þekkt fyrir gleði og glamúr.
Stórstjörnur flykkjast á keppnina en Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður heims, er mættur ásamt fjölskyldu sinni til Mónakó.
Ronaldo fylgdist með æfingu í dag og fékk bílferð um brautina áður en hann heimsótti herbúðir Mercedes.

Þar hitti hann Lewis Hamilton, fimmfaldan heimsmeistara í Formúlunni og féllust þeir í faðma.
Hamilton var einmitt hraðastur á æfingum dagsins.
Ronaldo er að ljúka sínu fyrsta tímabili hjá Juventus en hann fagnaði Ítalíumeistaratitlinum með liðsfélögum sínum.
🏆🏆🏆🏆🏆 x 🏆🏆🏆🏆🏆
— Sky Sports F1 (@SkySportsF1) May 23, 2019
When the 5-time F1 champ met the 5-time Ballon d'Or winner!@LewisHamilton, @Cristiano (and Ronaldo Jr) spent some time together in Mercedes' garage today#SkyF1 #MonacoGP pic.twitter.com/4AcghYYDVr
Athugasemdir