Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. maí 2021 08:00
Victor Pálsson
Forseti Sporting: Held að Ronaldo spili hér einn daginn
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo mun spila aftur með Sporting Lisbon einn daginn að sögn forseta liðsins, Frederico Varandas.

Ronaldo vakti fyrst athygli með Sporting en liðið varð portúgalskur meistari á þessu ári.

Forseti liðsins er vongóður um endurkomu Ronaldo sem spilar með Juventus í dag.

„Ég held að hann muni spila hér einn daginn. Cristiano var einn af þeim fyrstu til að senda mér skilaboð eftir sigurinn í deildinni," sagði Varandas.

„Hann á eitt ár eftir hjá Juventus og ég veit að hann vill berjast um Meistaradeildina."

„Hans endurkoma er undir honum komin. Fyrir utan það að vera frábær leikmaður er hann mikill stuðningsmaður Sporting."
Athugasemdir
banner
banner