Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. maí 2021 09:15
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Leikmenn Atletico fóru út á bílaplan til að fagna
Mynd: EPA
Altetico Madrid vann Real Valladolid í lokaumferð La Liga og er því Spánarmeistari í fyrsta sinn síðan 2014.

Luis Suarez skoraði sigurmarkið í gær en leikið var á Estadio José Zorrilla, heimavelli Real Valladolid. Leikið var án áhorfenda vegna Covid-19 faraldursins.

Hópur stuðningsmanna Atletico Madrid hafði hinsvegar safnast saman á bílaplaninun fyrir utan leikvanginn til að vera í sem mestri nálægð þegar titilinn yrði tryggður.

Eftir leik mættu svo leikmenn Atletico Madrid út á bílaplanið til að fagna með stuðningsmönnum.

Fögnuðurinn hélt áfram í Madrídarborg í alla nótt og hafði lögreglan í nægu að snúast.
Athugasemdir
banner
banner
banner