Liverpool ætti að ná í Yves Bissouma frá Brighton í sumar að sögn fyrrum leikmanns liðsins, John Barnes.
Bissouma er líklega á förum frá Brighton í sumarglugganum en fjölmörg félög eru talin vera á eftir þessum öfluga miðjumanni.
Arsenal er sterklega orðaður við leikmanninn sem var líklega besti leikmaður Brighton á tímabilinu.
Barnes vill sjá þá rauðklæddu reyna við Bissouma í sumar en hann er sjálfur sagður opinn fyrir því að fara í stærra félag.
„Liverpool ætti að kaupa Yves Bissouma frá Brighton," sagði Barnes í samtali við Goal.com.
„Miðað við hvað Liverpool vill þá er hann leikmaður sem hentar leikstíl liðsins."
Bissouma kom til Brighton fyrir þremur árum en hann var áður hjá Lille í Frakklandi.
Athugasemdir