Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 23. maí 2021 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu þegar bikarinn fór á loft - Hinsti dans Aguero á Etihad
Mynd: EPA
Það var ljóst fyrir löngu síðan að Manchester City yrði Englandsmeistari.

Liðið komst á mikið skrið í lok nóvember og eftir það var ekki horft til baka.

Man City burstaði Everton í lokaumferð deildarinnar í dag, 5-0, á Etihad-vellinum. Það var eins og Manchester City væri að spila upp á líf og dauða en í raun voru þeir ekki að spila upp á neitt.

Þetta er í sjöunda sinn sem Man City vinnur efstu deildina á Englandi en hér að neðan má sjá það þegar bikarinn fór á loft.

Sergio Aguero var að spila sinn síðasta deildarleik fyrir Man City í dag, síðasta leikinn á Etihad-vellinum sem leikmaður City. Hann er goðsögn hjá félaginu en er núna á leið til Barcelona. Aguero skoraði í lokaleiknum.



Athugasemdir
banner
banner