Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 23. maí 2021 15:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Svíþjóð: Jón Guðni lék í tapi Hammarby
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kalmar 2-1 Hammarby
0-1 G. Ludwigsson ('7)
1-1 Romario ('39)
2-1 R. Sjostedt ('68)

Hammarby heimsótti Kalmar í áttundu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Jón Guðni Fjóluson var í liði Hammarby. Þeir komust yfir eftir einungis sjö mínútna leik.
Kalmar jöfnuðu fyrir lok fyrri hálfleiks. Kalmar komust svo yfir þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum, fleiri mörk voru ekki skoruð og 2-1 tap Hammarby staðreynd.

Eftir leikinn er Hammarby í sjöunda sæti með 11 stig eftir átta leiki. næsti leikur liðsins er gegn Hacken en í liði Hacken eru Valgeir Lunddal Friðriksson og Óskar Sverrisson.
Athugasemdir
banner
banner