Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 23. maí 2021 09:00
Victor Pálsson
Zidane: Atletico á þetta skilið
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, var súr í gær eftir 2-1 sigur liðsins á Villarreal í spænsku deildinni.

Zidane og hans menn misstu af deildarmeistaratitlinum þrátt fyrir sigur en Atletico Madrid vann með tveggja stiga forskot.

Frakkinn var afar vonsvikinn eftir niðurstöðu gærdagsins en var þó stoltur af eigin mönnum.

„Ég er miður mín. Við unnum ekki La Liga. Það er svarið við spurningunni," sagði Zidane.

„Við verðum að óska Atletico til hamingju, þeir eiga þetta skilið því þeir sem eru á toppnum eiga skilið að vinna."

„Ég verð að þakka stuðningsmönnunum því þeir hafa staðið við bakið á liðinu. Ég held að allir geti verið stoltir af leikmönnunum sem gáfu allt."
Athugasemdir
banner
banner
banner