Rafael Leao hefur verið valinn besti leikmaður tímabilsins á Ítalíu en hann var lykilmaður hjá AC Milan sem tryggði sér ítalska meistaratitilinn í gær.
Liðsfélagar hans Pierre Kalulu og Fikayo Tomori komu einnig til greina sem og Ciro Immobile, markaskorari Lazio, og Milan Skriniar, varnarmaður Inter.
Liðsfélagar hans Pierre Kalulu og Fikayo Tomori komu einnig til greina sem og Ciro Immobile, markaskorari Lazio, og Milan Skriniar, varnarmaður Inter.
Rafael Leao átti frábært tímabil og steig upp á lokasprettinum. Hann skoraði fjórtán mörk á tímabilinu og mörg hver voru gríðarlega mikilvæg.
Þegar Milan þurfti mest á honum að halda þá brást portúgalski landsliðsmaðurinn ekki.
Athugasemdir