„Þetta var mjög svekkjandi í gær en við verðum að reyna ná okkur eins fljótt og við getum og byrja að fókusera á næsta leik," sagði Birkir Bjarnason leikmaður íslenska landsliðsins fyrir æfingu í morgun.
Birkir og strákarnir okkar töpuðu í gær 2-0 gegn Nígeríu í öðrum leik sínum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Næsti leikur er strax á þriðjudaginn gegn Króatíu.
Birkir og strákarnir okkar töpuðu í gær 2-0 gegn Nígeríu í öðrum leik sínum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Næsti leikur er strax á þriðjudaginn gegn Króatíu.
„Fyrri hálfleikurinn fannst mér vera mjög fínn. Kannski hefðum við átt að ná að skora eitt mark en það gerðist ekki. Síðan förum við inn í hálfleikinn og ætlum okkur að koma aftur út og vinna þennan leik en því miður gerðist það ekki," sagði Birkir sem segir það hafa verið erfitt að leika í aðstæðunum í Stalíngrad í gær.
„Það var erfitt, sérstaklega í lokin. Hvort það var útaf hitanum eða útaf stöðunni í leiknum það veit ég ekki. En þetta var erfitt."
Birkir segist vera góður í líkamanum og tilbúinn í leikinn gegn Króatíu.
„Mér líður mjög vel. Betur í dag en daginn eftir Argentínu leikinn. Ég held að menn séu ferskir og tilbúnir."
Viðtalið við Birki í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir