Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júní 2018 17:59
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Forsberg: Við eigum góða möguleika á að slá Þýskaland úr leik
Mynd: Getty Images
Þýskaland og Svíþjóð mætast núna klukkan 18:00 í lokaleik 2. umferðar í F-riðli, Svíþjóð getur með sigri slegið ríkjandi heimsmeistara Þjóðverja úr leik.

Svíinn Emil Forsberg sem leikur í Þýskalandi með RB Leipzig telur að Svíþjóð eigi góða möguleika á að slá Þjóðverja úr leik.

„Þetta verður mjög erfitt en ég tel að við eigum góða möguleika á því að henda þeim úr leik, það var mikilvægt að ná í sigur gegn Kóreu með það í huga að eiga næsta leik við Þýskaland."

„Á góðum degi getum við unnið hvaða lið sem er, við höfum sýnt það," sagði Forsberg sem er í byrjunarliði Svíþjóðar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner