Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 23. júní 2018 09:45
Magnús Már Einarsson
Gummi Hreiðars þurfti að öskra til að fá VAR vítið
Icelandair
Matthew Conger tilkynnir að hann ætli að skoða atvikið.
Matthew Conger tilkynnir að hann ætli að skoða atvikið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Hreiðarsson.
Guðmundur Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið fékk vítaspyrnu í leiknum gegn Nígeríu í gær eftir að myndbandsdómgæsla, VAR, var notuð. Nokkur VAR víti hafa verið dæmd á HM en í gær braut Tyronne Ebuehi á Alfreð Finnbogasyni og dæmd var vítaspyrna eftir talsverða reikistefnu.

Leikurinn hélt fyrst áfram áður en Matthew Conger, dómari frá Nýja-Sjálandi, ákvað að beita VAR tækninni. Atvikið var skoðað á myndbandinu og vítaspyrna dæmd í kjölfarið.

Freyr öskraði í eyrað á Gumma
Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari íslenska landsliðsins, er í beinu sambandi við Frey Alexandersson á meðan á leik stendur en Freyr situr ofar í stúkunni þar sem hann er meðal annars með sjónvarsskjá.

Dómarateymi gærdagsins ákvað að beita VAR dómgæslunni eftir að Guðmundur lét í sér heyra við fjórða dómara leiksins.

„Freyr var uppi í stúku og sendi mynd niður. Þetta var klárt brot við fyrstu sýn," sagði Guðmundur við Fótbolta.net í dag.

„Freyr öskraði í eyrað á mér að þetta væri klárt brot og þá fór ég til aðstoðardómarans og öskraði að þetta væri klárt brot. Hann sagði að það væri dómarans að ákveða það en ég sagði við að hann að hann yrði að láta vita því þetta var klárt brot í sjónvarpinu. Niðurstaðan var sú að hann fór og skoðaði þetta aftur og þá settist ég rólega niður því ég vissi að þetta væri víti."

„Ef við hefðum ekki sagt neitt, hefði hann þá ekki dæmt neitt?"
VAR hefur verið talsvert til umræðu á HM og sitt sýnist hverjum um þessa nýju tækni.

„Í þessum leikjum sem ég hef verið að fylgjast með og VAR hefur komið við sögu þá finnst mér menn hafa þurft að sækja þetta. Svíarnir voru komnir í varnarleik og voru ennþá að tuða þegar dómarinn ákveður þetta. Mér finnst að þetta eigi ekki að vera svona."

„Ef við mótmælum ekki, fáum við þá ekki neitt? Ef við mótmælum þá er þetta hugsanlega skoðað. Mér fannst við þurfa að sækja þetta víti í gær. Leikmenn gerðu það líka inni á vellinum, þeir voru utan í dómaranum. Kannski kveiktum við bál þannig að allir byrjuðu að tala saman og segja við að hann að þetta væri víti.
Ef við hefðum ekki sagt neitt, hefði hann þá ekki dæmt neitt?"


Hér að ofan má sjá Guðmund fara yfir atburðarásina í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner