Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júní 2018 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Hazard um Lukaku: Hann á allt það besta skilið
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku átti frábæran leik þegar Belgía sigraði Túnis 5-2 fyrr í dag en Lukaku skoraði tvö mörk. Eden Hazard hrósaði Lukaku eftir leikinn en Hazard skoraði einnig tvö mörk í leiknum.

„Hann (Lukaku) á allt það besta skilið, hann leggur mikið á sig á æfingum, hann skorar mikið af mörkum og við erum að vinna leiki."

„Við náum alltaf vel saman inn á vellinum, við erum sterkara lið þegar við spilum saman. Þegar við sendum boltann fyrir markið í átt að Lukaku þá klikkar hann aldrei," sagði Hazard.

Hazard fór meiddur af velli á 68. mínútu en hann segir það ekkert vera sem þarf að hafa áhyggjur af og hann verður því klár í næsta leik þegar Belgía mætir Englandi í lokaumferð G-riðils þann 28. júní.



Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner