Helgi Kolviðsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er alls ekki sammála þeim vangaveltum að landsliðshópurinn hafi ekki verið með einbeitinguna alveg í lagi í aðdraganda leiksins gegn Nígeríu.
Halldór Björnsson, fyrrum þjálfari U17 landsliðsins, ýjaði að því í Twitter færslu að utanaðkomandi þættir hefðu verið að trufla menn fyrir leikinn.
Halldór Björnsson, fyrrum þjálfari U17 landsliðsins, ýjaði að því í Twitter færslu að utanaðkomandi þættir hefðu verið að trufla menn fyrir leikinn.
„Ég hef ekki lesið þessa færslu. Ég var að horfa á leikinn (gegn Nígeríu) aftur í nótt. Hvað er svona merkilegt við þessa færslu?" sagði Helgi þegar hann var spurður út í færsluna.
„Það er bara eðli lífsíns í fótboltanum að þegar maður vinnur leiki þá gerir maður allt rétt, þegar maður tapar leikjum gerir maður allt rangt. Þannig er það bara."
Helgi efast ekki um að leikmenn hafi verið með 100% einbeitingu á leiknum.
„Þetta er bara bull, sorrí. Ég nenni ekki að ræða svona hluti. Menn skrifa ýmislegt í hita leiksins. Við vorum allir svekktir. Stundum þarf maður bara að sofa yfir þessu og opna munninn tólf tímum seinna."
Athugasemdir