Ahmed Musa reyndist hetja Nígeríu í gær þegar liðið mætti Íslandi í 2. umferð D-riðils en Musa skoraði bæði mörk Nígeríu í 2-0 sigri.
Nígería fór með sigrinum í 2. sætið í riðlinum og er með 3 stig, sigri þeir Argentínu á þriðjudaginn fara þeir áfram í 16-liða úrslitin. Musa ætlar sér að skora tvö mörk í leiknum gegn Argentínu en hann hefur gaman af því að mæta Messi.
„Alltaf þegar ég spila á móti Argentínu og þegar ég mæti Messi þá skora ég tvö mörk, ég man að fyrir fjórum árum þegar við Messi mættumst í Brasilíu þá skoraði ég tvö mörk, ég spilaði einnig á móti Messi þegar Leicester og Barcelona mættust og þá skoraði ég tvö mörk."
„Í næsta leik getur allt gerst og ég ætla mér að skora tvö mörk," sagði Musa.
Athugasemdir