Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júní 2020 09:40
Elvar Geir Magnússon
Aguero frá út tímabilið?
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Manchester City rúllaði yfir Burnley 5-0 í ensku úrvalsdieldinni í gær. Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Aguero fór af velli vegna meiðsla á hné.

Pep Guardiola segir að meiðslin líti ekki vel út.

Sóknarmaðurinn þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa verið að kljást við Ben Mee.

Það ætti að skýrast betur í dag hversu alvarleg meiðslin eru.

„Þetta lítur ekki vel út. Það var eitthvað í hnénu en við munum vita meira á morgun. Hann fann fyrir verkjum og hefur verið með verki síðasta mánuðinn á þessu svæði," sagði Guardiola eftir leikinn í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner