Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 23. júní 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Foden: Besti leikur minn með Manchester City
Mynd: Getty Images
„Það er gott að spila, skora mörk og njóta þess að spila fótbolta," sagði Phil Foden, miðjumaður Manchester City, eftir 5-0 sigurinn á Burnley í gær.

Hinn tvítugi Foden skoraði tvö mörk og átti frábæran leik í gærkvöldi.

„Ég er ánægður með hvernig liðið er að spila í augnablikinu. Við lítum vel út og ég vona að það haldi áfram í næstu leikjum."

„Ég tel að þetta hafi verið besti leikur minn í City treyju. Ég er ennþá læra á hverjum degi. Ég er ennþá ungur og á mikið eftir ólært en ég er ánægður með það þegar ég sýni svona frammistöðu."


Sjá einnig:
Sjáðu markið: Foden þakkar fyrir traustið
Athugasemdir
banner