Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 23. júní 2020 23:20
Baldvin Már Borgarsson
Gústi Gylfa: Stórsigur fyrir okkur
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ágúst Þór Gylfason var ánægður með fyrsta sigur sinna manna eftir að tímabilið hófst fyrir alvöru eftir 3-0 sigur í Mjólkurbikarnum þegar Höttur/Huginn mætti í heimsókn á Vivaldivöllinn fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 3 -  0 Höttur/Huginn

„Já þetta er eiginlega stórsigur fyrir okkur, gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá fyrsta sigurinn á tímabilinu og mun hjálpa okkur í framhaldinu bæði í deild og í bikar.''

Grótta fékk nokkur góð færi í leiknum, var mögulega skortur á sjálfstrausti fyrir framan markið se, olli því að Grótta skoraði ekki meira í dag?

„Við erum ekki búnir að komast nálægt markinu í síðustu tveimur leikjum, við fengum upphlaup núna sem við máttum nýta betur en það stærsta í þessu er að vinna okkar fyrsta sigur, halda hreinu og fá góða frammistöðu, það er númer 1, 2 og 3 og mun hjálpa okkur í framhaldinu.''

Má búast við breytingum á leikmannahóp Gróttu fyrir gluggalok?

„Já ég loka ekki á neitt, við erum bara að skoða hlutina og það gæti alveg eins gerst en við sjáum til hvernig vikan verður.''
Athugasemdir
banner
banner