Leicester hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við William Carvalho, miðjumann Real Betis.
Radio Marca segir frá þessu í dag.
Þar kemur einnig fram að félögin hafi ekki ennþá samið um kaupverð en reiknað sé með að það verði gert á næstunni.
Radio Marca segir frá þessu í dag.
Þar kemur einnig fram að félögin hafi ekki ennþá samið um kaupverð en reiknað sé með að það verði gert á næstunni.
Hinn 27 ára gamli Carvalho kom til Betis frá Sporting Lisabon árið 2018 en félagið keypti þá 75% hluta í honum á 20 milljónir evra.
Carvalho hafði verið orðaður við félög á Englandi áður en hann gekk í raðir Betis.
Athugasemdir