Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júní 2020 21:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-kvenna: Fyrsti sigur Selfoss, Blikar burstuðu KR og drama í Árbæ
Berglind Björg skoraði þrennu fyrir Breiðablik.
Berglind Björg skoraði þrennu fyrir Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði tvö mörk í kvöld.
Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði tvö mörk í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld. Í Hafnarfirði mættust stigalausu liðin FH og Selfoss.

Tiffany Janea MC Carty sem gekk í raðir Selfoss fyrir leiktíðina skoraði bæði mörk leiksins og sá til þess að Selfoss er komið á blað í deildinni. FH situr áfram á botninum án stiga.

Á Kópavogsvelli burstuðu Blikar lið KR. Sex marka sigur staðreynd og skoraði Berglind Björg fyrstu þrjú mörk leiksins, öll í fyrri hálfleik.

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og á milli marka Sveindísar skoraði Agla María Albertsdóttir úr vítaspyrnu. Breiðablik er á toppnum eftir leiki kvöldsins, Þór/KA eða Valur geta jafnað við Blika á morgun en þau lið mætast innbyrðis og voru með jafnmörg stig og Blikar fyrir leiki umferðarinnar.

Að lokum var mikil dramatík þegar Fylkir tók á móti nýliðum Þróttar á Würth vellinum. Bryndís Arna Níelsdóttir kom Fylki yfir snemma leiks en í upphafi seinni hálfleiks skoraði Stephanie Mariana Ribeiro jöfnunarmark fyrir Þrótt. Mary Alice Vignola skoraði undir lok leiks fyrir gestina og virtust þær ætla að taka heim með sér þrjú stig en Bryndís Arna jafnaði leikinn og sá til þess að stigin skiptust jafnt.

FH 0 - 2 Selfoss
0-1 Tiffany Janea MC Carty ('10 )
0-2 Tiffany Janea MC Carty ('58 )
Lestu um leikinn.

Breiðablik 6 - 0 KR
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('14 )
2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('17 )
3-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('32 )
4-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('52 )
5-0 Agla María Albertsdóttir ('74 , víti)
6-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn.

Fylkir 2 - 2 Þróttur R.
1-0 Bryndís Arna Níelsdóttir ('7 )
1-1 Stephanie Mariana Ribeiro ('48 )
1-2 Mary Alice Vignola ('90 )
2-2 Bryndís Arna Níelsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner