Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. júní 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Brescia: Balotelli er sammála mér
Mario Balotelli er sífellt til vandræða
Mario Balotelli er sífellt til vandræða
Mynd: Getty Images
Diego Lopez, þjálfari Brescia í Seríu A á Ítalíu, segir að Mario Balotelli þurfi tíma en hann býst þó við að fá hann aftur í hópinn á næstu vikum.

Balotelli hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikur en hann hefur skrópað á æfingar og er búist við því að hann yfirgefi Brescia í sumar.

Forseti félagsins hefur fengið nóg af honum en Lopez ætlar að gefa Balotelli tíma.

„Hann þarf tíma. Liðið hefur lagt mikið á sig á æfingum og þegar hann snýr aftur þá þarf hann að gera það nákvæmlega sama," sagði Balotelli.

„Ég talaði við hann og það var fyrsti dagurinn sem við hittumst síðan samkomubanni var sett á. Ég sagði honum það sama og ég hef sagt í fjölmiðlum en hver og einn ræður sínum örlögum. Við erum allir fullorðnir einstaklingar og ég er maður sem þjálfar 25 leikmenn, ekki bara hann."

„Mario var sammála mér. Við töluðum um all og ég vil verja hann en þessa stundina er liðið á leið í eina átt og hann í aðra,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner