KSÍ tilkynnti á vef sínum í gær að hægt sé að fá miða á alla leiki Íslands á EM í Englandi sem hefst í næsta mánuði.
Nokkuð langt er síðan uppselt var á alla leiki mótsins en KSÍ hefur áskotnast miðar sem hafa losnað af ýmsum ástæðum í lokaundirbúningi og skipulagi mótsins og leikjanna.
Á vef KSÍ er bent á að hægt sé að hafa samband sem fyrst við KSÍ í gegnum [email protected] og tryggja sér miða.
Leikir Íslands í riðlakeppninni
- Belgía - Ísland sunnudaginn 10. júlí á Manchester City Academy Stadium
- Ítalía - Ísland fimmtudaginn 14. júlí á Manchester City Academy Stadium
- Ísland - Frakkland 18. júlí á New York Stadium í Rotherham
Athugasemdir