Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. júní 2022 17:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Everton mun ekki og getur ekki borgað uppsett verð fyrir Winks
Mynd: EPA
Í morgun varfjallað um áhuga Everton á Harry Winks sem er miðjumaður Tottenham.

Sjá einnig:
Everton vill fá Harry Winks - Aldrei lærir Moshiri

Winks er ekki í stóru hlutverki hjá Tottenham og hafði Everton áhuga á því að fá hann á láni út tímabilið.

Samkvæmt fjölmiðlinum i er mjög ólíklegt að Winks sé að ganga í raðir Everton þar sem félagið er ekki tilbúið að borga 20 milljónir punda fyrir Winks sem er sú upphæð sem Tottenham vill fá.

Everton mun frekar horfa annað þar sem félagið á í fjárhagsörðugleikum og getur ekki eytt 20 milljónum punda í leikmann án þess að selja leikmann í burtu.

Winks er 26 ára gamall og er uppalinn hjá Tottenham. Hann á að baki tíu landsleiki fyrir England. Í vetur kom hann við sögu í nítján deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner