Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. júní 2022 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fólki bent á að fylgjast með Sveindísi - „Ein af þeim efnilegustu"
Icelandair
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það styttist í Evrópumótið í Englandi en Ísland er á meðal þáttökuþjóða á mótinu.

Vefmiðillinn The Scotsman ákvað að taka saman lista yfir leikmenn sem verður gaman að fylgjast með á mótinu sem framundan er; ein úr hverju liði.

Á þennan lista komast margar af bestu fótboltakonum í heimi eins og Alexia Putellas, Caroline Graham Hansen, Vivianne Miedema og Pernille Harder.

Fyrir hönd Íslands á listanum er engin önnur en Sveindís Jane Jónsdóttir sem þykir ein sú efnilegasta í heiminum í dag.

„Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg, er enn aðeins 20 ára gömul og er að byggja upp orðspor sitt í Evrópu sem ein af þeim efnilegustu. Verður EM 2022 mótið þar sem hún springa út? Ísland mun svo sannarlega vona það,” segir í umsögn um Sveindísi.
Athugasemdir
banner
banner