Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. júlí 2018 13:42
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikur: Sigur í fyrsta leik Sarri
Pedro Rodriguez fagnar marki sínu í dag
Pedro Rodriguez fagnar marki sínu í dag
Mynd: Getty Images
Perth Glory 0 - 1 Chelsea
0-1 Pedro Rodriguez ('5 )

Chelsea lagði Perth Glory að velli, 1:0, er liðin mættust í æfingaleik í Ástralíu í dag. Þetta var fyrsti leikur Chelsea undir stjórn Maurizio Sarri en hann tók við liðinu á dögunum.

Pedro Rodriguez skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu eftir frábær tilþrif frá Callum Hudson-Odoi. Hann kom með fyrirgjöf á Pedro sem kláraði vel.

Jorginho spilaði þá með Chelsea í dag en Sarri fékk hann til félagsins á dögunum frá Napoli. Ross Barkley, Alvaro Morata, Ethan Ampadu og markvörðurinn Marcin Bulka spiluðu einnig.

Chelsea mætir Inter í næsta æfingaleik en hann fer fram eftir fimm daga í Nice.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner