Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. júlí 2018 08:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Forseti Napoli staðfestir áhuga á Matteo Darmian
Darmian er líklega á förum til Ítalíu.
Darmian er líklega á förum til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Matteo Darmian, bakvörður Manchester United er eitt aðalskotmark Napoli ef eitthvað er að marka forseta félagsins.

Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli hefur sagt að þessi landsliðsmaður Ítalíu sé sá leikmaður sem félagið vilji helst fá. Darmian á eitt ár eftir af samningi sínum á Old Trafford og hefur lýst yfir vilja sínum til þess að spila reglulega á næsta tímabili.

Spilatími Darmian hefur verið af skornum skammti síðan Jose Mourinho kom til United. Darmian spilaði aðeins 17 leiki á síðustu leiktíð í öllum keppnum.

Félagsskipti Diogo Dalot frá Porto ýta enn frekar undir þá orðróma að Darmian fái að yfirgefa félagið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner