Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. júlí 2018 15:49
Brynjar Ingi Erluson
Guðlaugur Victor í liði vikunnar í Sviss
Guðlaugur Victor í baráttunni
Guðlaugur Victor í baráttunni
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði FC Zurich í Sviss, er í liði vikunnar eftir fyrstu umferð í svissnesku úrvalsdeildinni.

Zürich vann Thun 2:1 en Guðlaugur Victor lék allan leikinn í hjarta varnarinnar.

Hann hefur verið lykilmaður í liði Zürich og virðist vera að finna sig vel þar.

Guðlaugur mætir Grasshopper í næstu umferð en Rúnar Már Sigurjónsson leikur einmitt með því liði og var fyrirliði í fyrstu umferð.

Zürich hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á síðasta tímabili en liðið ætlar sér stærri hluti á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner