Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. júlí 2018 07:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Klopp býst við Alisson í Dublin þann 4. ágúst
Alisson Becker er dýrasti markvörður í sögunni.
Alisson Becker er dýrasti markvörður í sögunni.
Mynd: Vefur Liverpool
Jurgen Klopp segist reikna með að nýr markvörður Liverpool, Alisson mun spila sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Napoli í Dublin þann 4. ágúst.

Alisson kom til liðsins frá Roma í síðustu viku fyrir 67 milljónir punda en hefur verið gefið lengra frí eftir heimsmeistaramótið.

Hann vill endilega spila. Hann hefði getað komið til okkar hér í Ameríku en það hefði ekki verið sniðugt,” sagði Klopp.

Hann hefur átt langt ár og sem aðalmarkvörður Brasilíu hefur það verið ansi strembið svo ég sendi hann í frí aftur. Það verða tveir leikir fyrir hann til þess að spila og leikurinn gegn West Ham er aðeins fyrsti leikur tímabilsins, ekki sá síðasti. Ég myndi segja að hann spili í Dublin.”
Athugasemdir
banner
banner