Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 23. júlí 2018 09:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Loris Karius getur ekki hætt að gera mistök
Karius á í smá vandræðum með sjálfstraustið þessa dagana.
Karius á í smá vandræðum með sjálfstraustið þessa dagana.
Mynd: Getty Images
Loris Karius heldur áfram að gera mistök í markinu hjá Liverpool, að þessu sinni í þriðja marki Borussia Dortmund í gær og það mætti hreinlega halda að einhver bölvun hvíldi á honum svo undarlega hefur hann spilað upp á síðkastið.

Karius virðist ennþá eiga í vandræðum með að hrista af sér mistökin sem hann gerði í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor. Í leiknum gegn Dortmund í gær fékk Karius að heyra það hressilega vegna þriðja marks andstæðinganna.

Karius gat aðeins blakað skot Pulisic beint í fæturnar á Jacob Bruun Larsen sem skoraði þriðja mark leiksins. Sjón er sögu ríkari.



Athugasemdir
banner
banner
banner