Það fóru tveir leikir fram í 3. deild í dag þar sem KV hafði betur gegn Ægi og er komið upp í annað sæti.
Samkvæmt úrslitaþjónustu úrslit.net hafði KV betur gegn Ægi og er með 15 stig eftir sjö umferðir. Ægir er áfram í tíunda sæti af tólf, með sjö stig.
Einherji lagði þá Álftanes að velli en það voru gestirnir sem komust yfir þegar Arnar Ingi Valgeirsson skoraði á 30. mínútu.
Todor Hristov jafnaði fyrir Einherja og kom Recoe Reshan Marti heimamönnum yfir fyrir leikhlé.
Dilyan Nikolaev Kolev gerði þriðja mark Einherja en Atli Dagur Ásmundsson minnkaði muninn á 76. mínútu.
Álftnesingum tókst ekki að jafna á síðasta stundarfjórðungnum og sigur Einherja staðreynd.
Einherji er með tíu stig í fimmta sæti á meðan Álftanes er í næstneðsta sæti, með fimm stig.
Einherji 3 - 2 Álftanes
0-1 Arnar Ingi Valgeirsson ('30)
1-1 Todor Hristov ('36)
2-1 Recoe Reshan Marti ('41)
3-1 Dilyan Nikolaev Kolev ('71)
3-2 Atli Dagur Ásmundsson ('76)
KV 3 - 1 Ægir
Úrslit af úrslit.net
Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfæra sig.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir