Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. júlí 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: KSÍ 
Áhorfendum fjölgar í Pepsi Max-kvenna
Frá leik Vals og Breiðabliks.
Frá leik Vals og Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pepsi Max deild kvenna hefur farið vel af stað í sumar og vakið áhuga knattspyrnuunnenda, sem endurspeglast í aukinni aðsókn að leikjum deildarinnar.

Meðalaðsókn það sem af er sumri er 273 áhorfendur, sem er nokkru hærra en heildarmeðaltal síðustu tveggja ára, en tímabilið 2018 var meðalaðsóknin 186 og hækkaði í 217 tímabilið 2019.

Besta meðalaðsóknin er að heimaleikjum Breiðabliks, eða 491, og þar á eftir kemur Selfoss með 351 áhorfanda að meðaltali. KR og Fylkir eru einnig með yfir 300 að meðaltali. Þegar litið er til útileikja mæta flestir að meðaltali á útileiki Vals, eða 430, og þar á eftir koma FH (299) og Fylkir (297). FH-ingar eru með næst lægstu aðsóknina að sínum heimaleikjum, en næst bestu aðsóknina þegar kemur að útileikjum.

Best sóttu leikirnir hingað til hafa verið á Kópavogsvellinum - annars vegar leikur Breiðabliks og Íslandsmeistara Vals (683) og svo þegar þegar Breiðablik tók á móti FH (485). Þriðji best sótti staki leikurinn það sem af er sumri er svo heimaleikur Þróttar gegn Val (425 áhorfendur) og fjórði besti leikur Selfoss og Breiðabliks (417).

Næstu leikir í Pepsi Max deild kvenna eru á föstudag.
Athugasemdir
banner
banner