Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
"Komdu í fótbolta með Mola" komið á fulla ferð
Mynd: KSÍ
Útbreiðsluverkefnið "Komdu í fótbolta með Mola" er komið á fulla ferð. Verkefnið, sem er framhald á sama verkefnð frá árinu 2019, felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt.

Siguróli Kristjánsson, oftast kallaður Moli, hefur sem fyrr umsjón með verkefninu og mun hann setja upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.

Fyrstu heimsóknirnar voru í vikunni 13. - 17. júlí og halda áfram í þessari viku. Í síðustu viku fór Moli í ellefu heimsóknir og tíu heimsóknir eru komnar á dagskrá þessa vikuna.

Smelltu hér til að skoða dagskrána.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner