lau 23. júlí 2022 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Einherji og Sindri með sigra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einherji og Sindri áttu heimaleiki í 2. deild kvenna í dag og höfðu betur gegn ÍH og KH í neðri hluta deildarinnar.


Einherji skoraði fjögur gegn ÍH og er með sex stig eftir sjö umferðir. Oddný Karólína Hafsteinsdóttir setti tvennu fyrir Einherja.

Sindri lagði KH óvænt að velli og er með tólf stig eftir níu umferðir.

Svekkjandi fyrir KH sem hafði aðeins tapað einum leik fram að þessu á Íslandsmótinu, naumt tap gegn toppliði Fram.

KH er með tíu stig eftir sex umferðir og getur enn blandað sér í toppbaráttuna með nokkrum sigrum í röð. 

Einherji 4 - 1 ÍH
1-0 Yoana Peralta Fernandez ('18 )
2-0 Oddný Karólína Hafsteinsdóttir ('21 )
2-1 Júlía Rós Auðunsdóttir ('32 )
3-1 Oddný Karólína Hafsteinsdóttir ('36 )
4-1 Kamilla Huld Jónsdóttir ('84 )

Sindri 2 - 1 KH
1-0 Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir ('12 )
1-1 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('36 )
2-1 Inga Kristín Aðalsteinsdóttir ('89 )


Athugasemdir
banner
banner