Það hafa orðið nokkrar breytingar á leikmannahópi Liverpool í sumar.
Leikmenn á borð við Sadio Mane, Takumi Minamino, Divock Origi og Neco Williams hafa yfirgefið félagið. Þá eru Darwin Nunez, (frá Benfica), Fabio Carvalho (frá Fulham) og Calvin Ramsey (frá Aberdeen) gengnir til liðs við félagið.
Jurgen Klopp stjóri Liverpool segir að félagið sé ekki að fara bæta við sig leikmanni í sumar.
„Nema það koma upp meiðsli eða við seljum leikmenn," sagði Klopp.
Klopp var spurður hvort það væru fleiri leikmenn á förum. Hann hló af þeirri spurningu og sagði; „Ég vil ekki ræða svoleiðis hluti, þú veist það."
Athugasemdir