banner
   lau 23. júlí 2022 14:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zinchenko: Vita þau að ég er ekki De Bruyne?
Mynd: Getty Images
Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko gekk til liðs við Arsenal frá Manchester City á dögunum.

Þessi 25 ára gamli bakvörður samdi við City árið 2016 en hann kom frá rússnekska liðinu Ufa.

Hann þykir minna ansi mikið á fyrrum liðsfélaga sinn hjá City, Kevin de Bruyne, í útliti. Hann var til viðtals hjá Arsenal þar sem honum var tjáð að fólk hafi mikið verið að spurja hvort hann væri ekki að fara skrifa undir.

„Vita þau að ég er ekki De Bruyne? Ég þarf að spurja því þau eru kannski að ruglast, þetta kemur mér á óvart," sagði Zinchenko.

Þegar spyrillinn bendir á að fólk hafi oft ruglast á þeim sagði Zinchenko; „Það var bara í upphafi [ferilsins á Englandi]. Ég er miklu fallegri en hann. Við erum ekki að tala um fótboltahæfileika, það er ekki hægt að bera það saman."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner