Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. ágúst 2021 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adams eftir leik: Gáfu Fred markið því hann skorar ekki oft
Fred, miðjumaður Manchester United.
Fred, miðjumaður Manchester United.
Mynd: EPA
Che Adams, sóknarmaður Southampton, skaut aðeins á Fred, miðjumann Manchester United, eftir jafntefli liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Adams hélt að hann hefði skorað í leiknum en svo kom í ljós að markið var skráð sem sjálfsmark hjá Fred. Skot Adams hafði viðkomu í Fred á leiðinni í netið.

„Ég held að þeir hafi gefið honum (Fred) markið því hann skorar ekki mörg mörk. Ég tek stoðsendinguna," sagði Adams þegar honum var tjáð að markið væri ekki skráð á hann.

„Við börðumst vel og náðum stiginu. Þeir eru með frábært lið en við börðumst vel og náðum í verðskuldað stig."

Fred hefur skorað þrjú mörk fyrir Man Utd í ensku úrvalsdeildinni frá því hann kom til félagsins 2018. Hann skoraði gegn Leeds um síðustu helgi.

Hægt er að sjá markið úr leiknum með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner