Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. ágúst 2021 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Harvey er sérstakur leikmaður"
Harvey Elliott.
Harvey Elliott.
Mynd: EPA
Harvey Elliott byrjaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardag þegar Liverpool vann 2-0 sigur gegn Burnley.

Elliott er aðeins 18 ára gamall en miklar vonir eru bundnar við hann hjá Liverpool.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var gríðarlega sáttur með liðsfélaga sinn og hrósaði honum mjög eftir leikinn.

„Harvey er sérstakur leikmaður. Hann var frábær á láni hjá Blackburn á síðustu leiktíð og var hann mjög flottur á undirbúningstímabilinu," sagði Henderson.

„Mér fannst hann framúrskarandi í leiknum. Hann lagði mikið í leikinn og var líka frábær á boltanum. Heilt yfir fannst mér hann framúrskarandi."

Liverpool er að selja Xherdan Shaqiri til Lyon og er búist við því að Elliott stígi bara inn í hans hlutverk í hópnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner