Sampdoria 0 - 1 Milan
0-1 Brahim Diaz ('9 )
0-1 Brahim Diaz ('9 )
AC Milan vann fyrsta leik sinn í Seríu A í kvöld er liðið lagði Sampdoria að velli, 1-0.
Brahim Diaz gerði eina mark leiksins á 9. mínútu eftir fyrirgjöf frá Davide Calabria.
Sampdoria átti nokkur góð færi í leiknum en Mike Maignan, arftaki Gianluigi Donnarumma í markinu, átti draumabyrjun og varði vel í leiknum.
Olivier Giroud byrjaði þá sinn fyrsta leik eftir að hann kom frá Chelsea en Zlatan Ibrahimovic er enn frá vegna meiðsla.
Athugasemdir