West Ham United leiðir 1-0 gegn Leicester City í ensku úrvalsdeildinni en gestirnir eru manni færri.
Pablo Fornals kom West Ham yfir á 26. mínútu leiksins áður en Perez var rekinn af velli fjórtán mínútum síðar.
Perez missti boltann frá sér og ætlaði að ná honum af Fornals en var alltof seinn og fór af krafti í ökklann á landa sínum. Michael Oliver, dómari leiksins, skoðaði VAR-skjáinn og ákvað í kjölfarið að reka Perez af velli.
Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.
Sjáðu rauða spjaldið
Athugasemdir