Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 23. ágúst 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Tottenham að teikna upp tilboð í Traore
Adama Traore.
Adama Traore.
Mynd: Getty Images
Wolves býst við því að Tottenham geri tilboð í vængmanninn öfluga Adama Traore áður en sumarglugganum verður lokað.

Bruno Lage, stjóri Wolves, vill fá inn fleiri leikmenn áður en glugganum verður lokað og er spurning hvort það tengist eitthvað fyrirhuguðu tilboði frá Tottenham.

Nuno, stjóri Tottenham, vann með Traore hjá Úlfunum og vill fá hann í hóp sinn.

Fabrizio Romano, sem er með allt á hreinu þegar kemur að félagaskiptamarkaðnum, segir að forráðamenn Tottenham hafi rætt við kollega sína hjá Wolves og séu með tilboð í Traore í undirbúningi.

Þá segir hann að Tottenham vilji fá Noni Madueke, 19 ára sóknarmiðjumann PSV Eindhoven. Hollenska félagið vill þó halda leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner