Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 23. september 2018 13:08
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið KR og Fylkis: Beitir aftur í markið
Beitir Ólafsson snýr tilbaka
Beitir Ólafsson snýr tilbaka
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Núna klukkan 14:00 fer fram leikur KR og Fylkis í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla á Alvogenvellinum. Heimamenn í KR eru ennþá í bullandi Evrópubaráttu og geta með hagstæðum úrslitum í leikjum dagsins gulltryggt Evrópusæti sitt.

Gestirnir í Fylki hafa þá einnig til mikils að vinna en liðið er ekki ennþá með öruggt sæti í deildinni að ári. En eins og með KR geta Fylkismenn tryggt áframhaldandi veru sinni í Pepsi-deildinni með hagstæðum úrslitum í dag. Byrjunarliðin eru nú klár.

Heimamenn gera tvær breytingar á liði sínu frá síðasta leik liðsins gegn Keflavík. Beitir Ólafsson kemur aftur í mark KR í stað Sindra Snæs og þá kemur Skúli Jón aftur úr leikbanni í stað Gunnars Þórs.

Gestirnir frá Árbænum gera þrjár breytingar á liði sínu. Helgi Valur Daníelsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Hákon Ingi Jónsson koma allir út en inn í þeirra stað koma þeir Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Emil Ásmundsson og Elís Rafn Björnsson.

Beinar textalýsingar:
14:00 FH - Valur
14:00 ÍBV - Stjarnan
14:00 Fjölnir - Breiðablik
14:00 KR - Fylkir
14:00 KA - Grindavík
14:00 Keflavík - Víkingur R

Byrjunarlið KR:
30. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Björgvin Stefánsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
7. Daði Ólafsson
8. Emil Ásmundsson
10. Andrés Már Jóhannesson
14. Albert Brynjar Ingason
16. Ólafur Ingi Skúlason (f)
19. Ragnar Bragi Sveinsson
23. Ari Leifsson
24. Elís Rafn Björnsson

Beinar textalýsingar:
14:00 FH - Valur
14:00 ÍBV - Stjarnan
14:00 Fjölnir - Breiðablik
14:00 KR - Fylkir
14:00 KA - Grindavík
14:00 Keflavík - Víkingur R
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner