Arsenal fékk Everton í heimsókn í síðasta leik helgarinnar í enska boltanum og hafði betur þökk sé mörkum frá Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette með stuttu millibili snemma í síðari hálfleik.
Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína í leiknum og fær Gylfi Þór Sigurðsson 6.
Petr Cech, markvörður Arsenal, er maður leiksins með 9 í einkunn en á eftir honum kemur Lacazette með 8.
Richarlison og Theo Walcott voru bestu menn Everton með 7, en fjórir leikmenn Arsenal fengu sömu einkunn.
Arsenal: Cech (9), Bellerin (6), Mustafi (6), Sokratis (6), Monreal (6), Xhaka (6), Torreira (7), Ramsey (7), Aubameyang (7), Ozil (7), Lacazette (8)
Varamenn: Holding (6), Iwobi (5)
Everton: Pickford (6), Kenny (6), Keane (6), Zouma (6), Digne (6), Gueye (6), Davies (6), Sigurdsson (6), Walcott (7), Calvert-Lewin (6), Richarlison (7)
Varamenn: Bernard (5), Tosun (6)
Gylfi Sigurdsson vs Arsenal
— Icelandic Statistician™ (@IcelandicStats) September 23, 2018
32 out of 37 passes completed
- 86.5% Pass completion
20 Passes in the attacking third
- 17/17 Forward passes completed
4 Chances created with 3 from open play
- 2 Big chances created pic.twitter.com/hS5jLUMq3L
Athugasemdir