Jóhann Berg Guðmundsson átti flottan leik þegar Burnley fór illa með Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Burnley hafði aðeins fengið eitt stig úr fyrstu fimm leikjunum þegar kom að leiknum í gær en Burnley sýndi mikinn kraft gegn Bournemouth og vann 4-0. Bournemouth var búið að sækja sér 10 stig fyrir leikinn.
Jóhann Berg lagði upp eitt af fjórum mörkum Burnley en hann fær 8 í einkunnagjöf Sky Sports úr leiknum. Aðeins einn leikmaður fær hærri einkunn en það er Aaron Lennon, sem fær 9. Aðeins einn annar leikmaður fékk sömu einkunn og Jói Berg en það var varamaðurinn Ashley Barnes.
Burnley: Hart (7). Lowton (7), Tarkowski (7), Mee (7), Taylor (7), Lennon (9), Westwood (7), Cork (7), Gudmundsson (8), Vokes (6), Vydra (7)
Varamenn: Barnes (8), Wood (6)
Bournemouth: Begovic (4), Smith (4), S. Cook (4), Ake (5), Rico (4), Fraser (5), Lerma (4), Surman (4), Brooks (6), King (5), Wilson (4)
Varamenn: Francis (4), Stanislas (4), Defoe (4)
Athugasemdir