Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 23. september 2018 15:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Götze myndi henta Liverpool vel"
Götze er 26 ára.
Götze er 26 ára.
Mynd: Getty Images
Mario Götze er ekki að fá mikinn spiltíma með Borussia Dortmund og að mati Kevin Grosskreutz, fyrrum liðsfélaga hans hjá Dortmund, þá ætti hann að reyna að koma sér að hjá liði utan Þýskalands þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Götze skoraði sigurmark Þjóðverja á HM 2014 en eftir það hefur lítið heyrst af honum. Hann fékk ekki mörg tækifærin með Bayern München og ekki hefur hann verið að slá í gegn hjá Dortmund eftir að hann fór þangað aftur.

Grosskreutz telur að það væri gott fyrir Götze að prófa að spila utan Þýskalands og nefnir hann Liverpool sem góðan áfangastað fyrir sinn gamla liðsfélaga.

„Kannski væri gott fyrir hann að fara utan Þýskalands í vetur, finn frið og ró til að koma ferlinum aftur af stað. Klopp þekkir hann vel, Liverpool myndi henta honum vel," Grosskreutz í umræðuþætti um fótbolta á Sky í Þýskalandi.

Hvað segið þið stuðningsmenn Liverpool? Er Götze leikmaður sem þið viljð sjá hjá félaginu?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner