Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 23. september 2018 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Grealish að framlengja við Aston Villa
Jack Grealish í leik með Aston Villa
Jack Grealish í leik með Aston Villa
Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Jack Grealish er að framlengja samning sinn við Aston Villa. Hann verður falur fyrir 60 milljónir punda.

Grealish átti frábært tímabil með Aston Villa á síðustu leiktíð sem varð til þess að Tottenham fór í viðræður við Villa.

Það gekk illa og Villa neitaði öllum tilboðum. Grealish fór því ekki neitt en var ekki bitur út í félagið og sætti sig við stöðuna.

Hann er nú við það að framlengja samning sinn en það verður klásúla upp á 60 milljónir punda honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner