Guðlaugur Victor Pálsson bar fyrirliðabandið er Zürich lagði Luzern að velli í mikilvægum leik í svissneska boltanum.
Zurich er komið fyrir ofan Luzern á töflunni og er í öðru til fjórða sæti með ellefu stig eftir sjö umferðir.
Guðlaugur Victor og félagar eru tíu stigum frá toppliði Young Boys sem er með fullt hús stiga eftir 7-1 sigur í stórleiknum gegn Basel í dag.
Hjörtur Hermannsson lék þá allan leikinn er Bröndby tapaði fyrir Birni Daníel Sverrissyni og félögum í Århus í danska boltanum.
Gestirnir í Bröndby voru betri í leiknum en heimamenn nýttu færin sín vel.
Björn Daníel fékk að spila síðustu tíu mínúturnar í sigrinum frækna og er Århus komið stigi yfir Bröndby.
Zürich 1 - 0 Luzern
1-0 S. Odey ('55)
Århus 3 - 2 Bröndby
1-0 J. Ankersen ('28)
1-1 K. Wilczek ('29)
2-1 C. H. Nielsne ('40)
2-2 K. Wilczek ('57)
3-2 T. Sana ('69)
Athugasemdir