Hollenski varnarmaðurinn fór meiddur af velli þegar Liverpool sigraði Southampton 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í gær
Hollenski varnarmaðurinn hefur verið magnaður í vörn Liverpool frá því hann kom til félagsins og gætu það orðið erfitt ef hann þyrfti að vera frá í einhvern tíma.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, býst þó ekki við því að Van Dijk verði mikið frá.
„Hann var nú þegar með mar á rifbeininu fyrir leikinn gegn PSG, sem er mjög óþægilegt. Hann fékk annað högg í þessum leik," sagði Klopp.
„Það er ekki gott en þetta ætti ekki að vera alvarlegt. Þetta á að vera allt í góðu og vonandi er það þannig. Ég hef ekki heyrt neitt annað."
Athugasemdir