Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum fyrir Ferencvaros í ungverska bikarnum í gær.
Kjartan byrjaði á bekknum þegar Ferencvaros spilaði við Szeged, sem spilar í C-deildinni í Ungverjalandi, en liðið var fyrsti mótherji Ferencvaros í bikarkeppninni þetta árið.
Kjartan Henry gekk í raðir Ferencvaros, sem er sigursælasta liðið í Ungverjalandi, frá Horsens í sumar. Kjartan hefur ekki verið að spila mikið í deildinni og ekki byrjað einn deildarleik hingað til. Hann byrjaði ekki í gær en fékk að koma inn á um miðbik seinni hálfleiks og hann nýtti tækifærið.
Hann skoraði frábært á 87. mínútu og opnaði þar með markareiking sinn með Ferencvaros. Kjartan tók boltann á lofti og smellhitti hann. Markvörðurinn gat ekki gert neitt annað en að horfa á.
Kjartani var greinilega létt en myndband af markinu má sjá eftir 2:30 í myndbandinu hér að neðan.
Athugasemdir