Jordan Pickford, markvörður Everton og enska landsliðsins, fékk mikil viðbrögð við gömlum færslum á Twitter í sumar en mörg þeirra voru ansi fyndin og áhugaverð.
Pickford var keyptur til Everton fyrir síðasta tímabil og þá er hann markvörður númer 1 hjá enska landsliðinu.
Liðið fór langt á HM í Rússlandi í sumar og komst alla leið í undanúrslit. Pickford var magnaður og fóru stuðningsmenn landsliðsins að grafa upp gamlar færslur á Twitter og fundu þeir nokkrar skemmtilegar.
Think nandos is on the cards
— Jordan Pickford (@JPickford1) October 15, 2013
„Þetta var fáránlega gaman. Ég efast um að ég hendi í fleiri færslur um Nando's og Sky á næstunni," sagði Pickford.
„Mér finnst Courtaneers enn góð hljómsveit. Ég er í rusli að ég missi af tónleikum þeirra í Echo Arena í næsta mánuði. Þessar færslur voru allt partur af gamaninu. Ég vildi að ég gæti gert svona hluti núna en það yrði ekki tekið jafnvel í það."
Wish the parents would pay for me to have sky i'n my room, freeview i's soul destroying at this time of night
— Jordan Pickford (@JPickford1) September 13, 2012
„Ég er kominn með Sky í öll herbergin núna! Ég var ný á Twitter þarna og vissi ekki hvað í andskotanum ég var að tísta um. Gott að fólk getur hlegið yfir þessu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir