Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður CSKA Moskvu í Rússlandi, gat ekki spilað með liðinu gegn Spartak í dag vegna meiðsla en hann ákvað að vera meðal stuðningsmanna.
Hörður meiddist í 3-0 sigri liðsins á Ufa síðustu helgi og var því ekki leikfær í dag.
Hann var þó meðal hörðustu stuðningsmanna CSKA og stýrði þeim á meðan allir hrópuðu CSKA.
Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.
ЦСКА 💔 pic.twitter.com/n5GRfm4hCN
— фэй. 🍂 (@fayscops) September 23, 2018
Athugasemdir