Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 23. september 2018 14:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Stórsigur fyrir leikinn gegn Þór/KA
Sara Björk er í lykihlutverki hjá Wolfsburg.
Sara Björk er í lykihlutverki hjá Wolfsburg.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði á miðjunni hjá Wolfsburg þegar liðið fór illa með SGS Essen í þýsku úrvalsdeildinni.

Staðan var markalaus í leikhléi en ekki var mikið liðið af seinni hálfleiknum þegar danska landsliðkonan Pernille Harder kom Wolfsburg 1-0 yfir.

Eftir það bætti Wolfsburg við fjórum mörkum. Ewa Pajor gerði þrennu og fyrirliðinn Nilla Fischer náði líka að skora.

Auðveldur sigur hjá Wolfsburg sem hefur unnið báða leiki sína hingað til í þýsku úrvalsdeildinni.

Wolfsburg spilar við Þór/KA á miðvikudaginn í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þetta er seinni leikur liðanna en fyrri leikurinn á Akureyri endaði með 1-0 sigri Wolfsburg.
Athugasemdir
banner
banner
banner